fös

Hönnuðir framtíðarinnar hanna fótaskel á gervifætur
Össur er að fara af stað með Hönnunarkeppni fyrir nemendur Listaháskóla Íslands.
Nemendur munu spreyta sig í að hanna fótaskel fyrir gervifætur með notendur í fyrirúmi. Nemendur munu fara í rannsóknarvinnu, huga að tilfinningu notenda, gæði hönnunar og sýna eigin hönnun og nýsköpun í sínu verkefni.
Sigurvegari keppninnar mun fá tækifæri á að kynna sína hugmynd á Nýsköpunarvikunni 2021.